föstudagur, 14. júní 2013

OreoLakkrís Toppar

Ég hef mjög gaman af því að baka, sérstaklega að prófa nýjar uppskriftir og breyta uppskriftum. 
Ég er búin að baka klassíska lakkrístoppa ansi oft og ætlaði að gera það í enn eitt skiptið þegar ég var á leið í saumaklúbb og átti að mæta með "eitthvað sætt". 
Í búðinni datt mér í hug að skipta út súkkulaðinu fyrir Oreo kex. 
Útkoman var þessi:

Eggjahvítur og púðursykur þeytt saman


Oreo saxað smátt



Lakkrískurli og oreo bætt útí stífþeyttar eggjahvíturnar



Öllu hrært varlega saman með sleikju, því næst eru topparnir mótaðir með tveimur teskeiðum og þeir settir á bökunarpappírsklædda plötu og inn í ofn á 150°C í c.a. 14 mínútur



Dásamlega gott!

Uppskriftin

3 Eggjahvítur
200g Púðursykur
150g lakkrískurl
12 Oreo kexkökur

Ótrúlega einfalt og slær alltaf í gegn :)

-e