Það sem þarf:
2 msk ólífuolía
1 laukur
1 rauðlaukur
2-3 hvítlauksrif
1 chilli (ég nota rautt)
1 líter tómatsafi (má sleppa og hafa 1 líter af vatni í staðin)
2 paprikur (ég hef oftast rauða og gula)
2-3 sellerístönglar
3-4 gulrætur
1 stór sæt katrtafla
4 dósir tomat paste (Hunt´s 170g)
2 dósir diced tomatos (Hunt´s)
1 1/2 líter vatn (2 ef tómatsafanum er sleppt)
2-3 msk philadelphia sweet chilli rjómaostur
1-2 msk fljótandi kjúklingakraftur (ef þarf, smakkið ykkur til)
3-4 kjúklingabringur
1 tsk karrý
1 tsk paprikuduft
1/4 tsk cumminpipar
sýrður rjómi
tortilla snakk (classic)
salt og pipar eftir smekk
Það má auðvitað nota annað grænmeti t.d. sellerírót, rófur, ferska tómata og alls kyns ferskar kryddjurtir. Notið bara það sem er ferskast og girnilegast hverju sinni.
Laukur, rauðlaukur, hvítlaukur og chilli (fræhreinsað en ef þú vilt hafa súpuna vel sterka má hafa fræin með) saxað smátt og steikt við vægan hita uppúr olíunni og kryddinu
vatninu, tómatsafanum, tómat paste og tómat teningunum bætt útí og látið malla saman á vægum hita á meðan grænmetið er skorið niður
grænmetinu og sætu kartöflunum er bætt útí súpuna og leyft að malla á meðan kjúklingurinn er undirbúinn
kjúklingurinn er kryddaður með salti, pipar og papriku
kjúklingnum er bætt útí súpuna (láta safan af pönnunni fylgja með)
Því næst er rjómaostinum bætt útí og súpan smökkuð til, á þessum tímapunkti er gott að meta hvort nota þarf kjúklingakraftinn og hvort nóg sé af kryddunum.
Því lengur sem súpan fær að malla því betra, ég tala nú ekki um hversu dásamlega góð hún er daginn eftir.
Þessi uppskrift dugir vel í matinn fyrir 3-4 í tvo daga.
Súpan er borin fram með sýrðum rjóma og toppuð með tortilla snakki og ekki skemmir hvítvínsglas fyrir :)
Njótið vel
-e










Engin ummæli:
Skrifa ummæli